Klukkan 23:17 í kvöld varð jarðskjálfti af stærðinni 3,5 í suðvestanverðum Mýrdalsjökli.
Uppstök skjálftans voru efst í Sólheimajökli og hefur Veðurstofan fengið tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist meðal annars í Þórsmörk, Skógum og á Hvolsvelli.