Klukkan 22:18 varð skjálfti af stærðinni 4,5 í Mýrdalsjökli. Hann fannst vel í nærliggjandi sveitum.
Þremur mínútum áður varð annar skjálfti af stærðinni 3,2 og fannst hann einnig vel í Mýrdalnum.
Frá klukkan tíu í kvöld hefur á þriðja tug minni skjálfta mælst í Mýrdalsjökli.
Sérfræðingur á skjálftavakt Veðurstofunnar segir í samtali við mbl.is að ekki sé ástæða til að hafa áhyggjur af skjálftunum í Kötlu í kvöld. Algengt sé að Katla hristi sig í júlí, þegar fer að hitna og jökullinn bráðnar.