Samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra mun skipa starfshóp sem gerir ítarlega fýsileikakönnun á gerð ganga milli Heimaeyjar í Vestmannaeyjum og Kross í Landeyjum.
Þetta kemur fram í tillögu til þingsályktunar um göng milli lands og Eyja en flutningsmenn eru Sjálfstæðisfólkið Ásmundur Friðriksson, Páll Magnússon, Vilhjálmur Árnason og Unnur Brá Konráðsdóttir.
Morgunblaðið greinir frá þessu.
Samkvæmt tillögunni verða kannaðir möguleikar á gerð mismunandi tegunda ganga og kostir og gallar hverrar gerðar metnir auk þess sem unnar verði kostnaðar- og arðsemisáætlanir. Starfshópurinn skili skýrslu með niðurstöðum eigi síðar en 1. október á næsta ári.
Segir í greinagerð vegna málsins að þótt Landeyjahöfn hafi sannað sig sem mikil samgöngubót hafi siglingar um hana ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Höfnin hafi verið lokuð vegna sandburðar í allt að 120 daga á ári þegar verst hafi látið.
Fjölmargar ferðir falli niður vegna ölduhæðar og sandburðar yfir bestu sumarmánuði og veldur óáreiðanleiki hafnarinnar íbúum og atvinnulífi, ekki síst ferðaþjónustunni, verulegum vandræðum og tekjutapi.
„Milli lands og Eyja eru 10 km í beinni sjólínu en reiknað er með að göng frá Heimaey að Krossi í Landeyjum verði um 18 km,“ segir enn fremur og því er bætt við að nú þegar liggi fyrir að höfnin í Landeyjum standi ekki undir þeim væntingum að vera heilsárshöfn.