Hugmyndir eru uppi um samstarf sveitarfélaganna í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslum í brunamálum. Lúta þær jafnframt að samstarfi um slökkviliðsstjóra í fullu starfi.
Fulltrúar Ásahrepps, Mýrdalshrepps, Rangárþings eystra, Rangárþings ytra og Skaftárhrepps munu hittast og ræða málið í dag á Hvolsvelli.