Skógar koma vel undan ösku

Skógar í Þórsmörk og Goðalandi koma vel undan ösku sem féll þar 18.-21. maí sl. Þriggja sm öskulag var í Húsadal.

Öskulagið var þykkast í Húsadal en minna í Langadal og Básum, eða um 1-2 cm. Askan féll með rigningu í Húsadal og festist á trjágróðri, en í Langadal og Básum féll askan í þurru veðri og settist á skógarbotninn.

Leit skógurinn í Húsadal illa út fyrstu dagana eftir öskufallið og varð öskugrár en eftir örfáa daga var komin græn slikja yfir skóginn enda sprengdu trén öskuna utan af greinum og brumum þegar þau laufguðust.

Að sögn Hreins Óskarssonar, skógarvarðar á Suðurlandi, er skógurinn í góðu ásigkomulagi og líta tré vel út. Ekki spillir fyrir að töluverð næring er í öskunni og virkar öskufallið því eins og áburðargjöf á skóginn.

Botngróður í skóginum mun eiga í einhverjum erfiðleikum með að spretta upp úr öskunni þar sem hún er þykkust, en þegar rignt hefur í skóginum mun askan skolast niður í svörðinn og þá munu blómplöntur koma í ljós.

Fyrri greinMikið líf í Menningarverstöðinni
Næsta greinDeilt um sundlaugarfríðindi í bæjarráði