Kennsludögum grunnskólanema í Rangárþingi ytra og í Ásahrepi verður fækkað um tíu á ári og lengist sumarfrí þeirra sem því nemur.
„Auðvitað er þetta skerðing á þjónustu en ekki svo mikil að fólk telji hana óásættanlega,“ segir Magnús Jóhannsson, formaður fræðslunefndar Rangárþings ytra og Ásahrepps, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Samkvæmt ákvörðuninni verður skólaárið í grunnskólunum á Hellu og á Laugalandi stytt um fimm daga að hausti og fimm daga að vori næstu tvö árin í sparnaðarskyni.
Á síðasta fundi fræðslunefndarinnar kom fram að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefði lýst því viðhorfi í bréfi til skólastjóra Grunnskólans á Hellu að breytingin þyrfti ekki að fara fyrir ráðuneytið.
„Þar kemur einnig fram að ráðuneytið leggur áherslu á að sátt sé innan samfélagsins um breytingarnar og samráð sé haft við skólaráð og skólanefnd og viðhorf hagsmunaaðila í samfélaginu séu könnuð áður en endanleg útfærsla verður valin og að þess sé gætt að daglegt vinnuálag á nemendur verði ekki óhóflegt,“ segir í fundargerð fræðslunefndar. Enn fremur að málið hafi verið rætt í skólaráðum beggja skólanna og á foreldrafundum. „Viðhorf foreldra eru nær undantekningalaust jákvæð.“