Skólanefnd Fjölbrautaskóla Suðurlands lýsir miklum áhyggjum af boðuðu verkfalli kennara í framhaldsskólum landsins næstkomandi mánudag.
„Ekki þarf að fjölyrða um þau alvarlegu áhrif sem verkfall getur haft á nám og stöðu nemenda og fjölskyldna þeirra,“ segir í ályktun skólanefndarinnar, sem harmar að kennarar neyðist til að beita verkfallsvopni og hvetur samningsaðila til að ganga til samninga tafarlaust.