Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á að byggja þurfi upp aðra hvora flugbrautina í Öræfum til þess að þjóna neyðar- og sjúkraþjónustu á svæðinu.
Bæjarstjórnin ályktaði um þetta mál á síðasta fundi sínum vegna alvarlegra bílslysa sem hafa orðið í Sveitarfélaginu Hornafirði og Skaftárhreppi undanfarin ár, samhliða auknum ferðamannastraumi. Fjöldi ferðamanna sem heimsækja Skaftafell og Jökulsárlón árið 2019 var um 850 þúsund.
„Nýlega fór smárúta út af veginum á Skeiðarársandi með unglingsstrákum á vegum Ungmennafélagsins Sindra. Sem betur fer slösuðust þeir minna en á horfðist og eru drengirnir á batavegi. Að slysinu komu fjölmargir viðbragðsaðilar og heilbrigðisstarfsfólk og voru drengirnir allir fluttir á Landspítalann til aðhlynningar með þyrlu en sjúkravél gat ekki lent í Öræfum þar sem vellirnir þar eru ekki með bundnu slitlagi,“ segir í ályktun bæjarstjórnar.
Í Öræfunum eru tveir flugvellir; í Skaftafelli og á Fagurhólsmýri og leggur bæjarstjórn Hornafjarðar áherslu á að tryggja þarf öryggi á svæðinu með viðunandi hætti og beinir því til alþingismanna, ráðherra, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og ISAVIA að láta meta kostnað þess að byggja upp aðra hvora flugbrautina í Öræfum og jafnframt að leggja mat á hvor þeirra henti betur til lendinga að teknu tilliti til öryggissjónarmiða.
„Það er nauðsynlegt að hafa flugvöll sem getur þjónað neyðar- og sjúkraþjónustu á þessu fjölsótta og víðfeðma landsvæði,“ eru lokaorð ályktunarinnar.