Skorar á forsvarsmenn Íslandspóst að endurskoða lokanir

Hvolsvöllur. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Stjórn Verkalýðsfélags Suðurlands mótmælir fyrirhugaðri lokum á póstafgreiðslustöðvum á Hellu og Hvolsvelli.

„Fyrir liggur að með þessari ákvörðun muni störf hverfa af svæðinu og við það er ekki unað. Á tímum þar sem netverslanir eru á uppleið er ljóst að lokun póstafgreiðslustöðva kemur til með að hafa mikil áhrif á félagsmenn og íbúa sveitarfélaganna,“ segir í ályktun frá verkalýðsfélaginu.

Stjórn Verkalýðsfélags Suðurlands krefst þess að forsvarsmenn Íslandspósts endurskoði ákvörðunina strax og skorar á fulltrúa sveitarfélaganna að beita sér harðlega í þessu máli, til hagsbóta fyrir íbúa þeirra.

Fyrri greinKynjafræði á þemadögum í Hvolsskóla
Næsta greinKynningarfundur um útboð Ölfusárbrúar á morgun