Bæjarráð Árborgar skorar á Vegagerðina að setja á dagskrá stakstæða göngubrú yfir Ölfusá sem allra fyrst, svo tryggja megi neyðarleið viðbragðsaðila ásamt öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda á brúnni.
Þessi áskorun var samþykkt samhljóða í bæjarráði í síðustu viku eftir umferðarslys sem varð á brúnni síðastliðinn miðvikudag. Þar lentu tvær bifreiðar saman og önnur þeirra lenti hafnaði á handriði milli akgreinar og gönguleiðar.
Í bókun sinni áréttar bæjarráð fjölmargar fyrri bókanir um mikilvægi stakstæðrar göngubrúar yfir Ölfusá. Samkvæmt heimildum sunnlenska.is eru teikningar af þeirri brú þegar til og hefur sveitarstjórnarfólk í Árborg þrýst reglulega á að hún komi til framkvæmda.