Um klukkan 4:30 í morgun var tilkynnt um menn á svartri Volkswagen Golf fólksbifreið sem væru að ónáða íbúa í íbúðarhúsi við Eyrargötu á Eyrarbakka. Skömmu síðar var aftur hringt og greint frá því að skotið hafi verið á húsið.
Lögreglumenn á Selfossi og sérsveit ríkislögreglustjóra fóru þegar að Eyrarbakka. Sérsveitarlögreglumenn mættu Volkswagen bifreiðinni í Þrengslum og handtóku þar þrjá karlmenn og konu. Í farangursgeymslu bifreiðarinnar var haglabyssa.
Einu skoti var hleypt af á húsið. Höglin lentu á vegg við eldhúsglugga þess þar sem ungur karlmaður stóð fyrir innan gluggann. Má telja happ að höglin höfnuðu ekki í rúðunni með hugsanlega alvarlegum afleiðingum.
Fjórmenningarnir dvelja í fangageymslu lögreglunnar á Selfossi og bíða yfirheyrslu. Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sér um tæknirannsókn. Þetta er mjög alvarlegt tilvik og rannsókn verður framhaldið í dag. Síðar í dag verður metið hvort þörf er á að úrskurða einn eða fleiri í gæsluvarðhald.
Lögreglan á Selfoss biðlar til allra þeirra sem veitt geta upplýsingar um ferðir svörtu Volkswagen Golf bifreiðinnar á Eyrarbakka á milli klukkan 4:20 og 4:40 eða heyrðu skothvell að hafa samband í síma 480 1010. Mjög áríðandi er að fá slíkar upplýsingar.
Á þessari stundu liggur ekki fyrir hvað lá að baki skotárásarinnar og ekki hægt að upplýsa um stöðu rannsóknarinnar.