Um helgina var skotvopnum, tveimur kindabyssum og riffli, stolið úr bílskúr við íbúðarhús á Selfossi.
Vopnin voru í læstum byssuskáp og lyklar að honum geymdir á sérstökum stað í bílskúrnum. Ekki er vitað hver stal vopnunum en líkur eru til að viðkomandi hafi verið kunnugt um hvar lykillinn að byssuskápnum var geymdur.
Málið er í rannsókn og lögreglan leitar vísbendinga og biður alla þá sem veitt geta upplýsingar að hafa samband í síma 480 1010.