Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar og Karl Andreassen, framkvæmdastjóri Ístaks skrifuðu undir verksamninginn um smíði brúar yfir Stóru-Laxá í gær. Ístak mun hefja vinnu strax á mánudag og vinna við verkið í allan vetur.
Verkið felst í byggingu brúar yfir Stóru-Laxá, gerð nýs vegkafla Skeiða- og Hrunamannavegar beggja vegna, breikkun vegamóta við Skarðsveg og Auðsholtsveg og gerð reiðstígs. Nýja brúin verður verður til hliðar við núverandi brú, tvíbreið, staðsteypt, eftirspennt bitabrú, 145 m löng í fjórum höfum. Lengd vegkafla er rúmlega 1.000 m og lengd reiðstígs rúmir 300 m.
Karl Andreassen, framkvæmdatjóri sagði að vinna við verkið hæfist strax á mánudag og fljótlega eftir það mætti búast við því að sæist til vinnuvéla, en ætlunin er að vinna við verkið í allan vetur. Ístak bauð rúma 791 milljón króna í verkið sem var tæplega 82 prósent af áætluðum verktakakostnaði.
Bergþóra Þorkelsdóttir sagði ánægjulegt að skrifa undir enn einn samninginn sem fæli í sér fækkun einbreiðra brúa sem sneri ekki eingöngu að Hringveginum heldur einnig annarsstaðar á vegakerfinu, sérstaklega væri það mikilvægt á umferðarmiklum vegum.
Reiknað er með að núverandi brú verði látin standa og fái nýtt hlutverk sem reiðstígur yfir Stóru-Laxá. Tilgangur framkvæmdarinnar er að auka umferðaröryggi m.a. með fækkun einbreiðra brúa, greiða fyrir umferð af hliðarvegum og auka öryggi hestamanna.
Áætluð verklok eru fyrirhuguð 30. september 2022.