Danskur ferðamaður slapp með skrekkinn þegar hann velti bíl sínum nokkrar veltur á malarvegi við Keldur á Rangárvöllum í gær.
Daninn steig ómeiddur úr flaki bílsins sem er ónýtur.
Lögreglan á Hvolsvelli segir allt benda til þess að maðurinn hafi ekið of hratt miðað við aðstæður.