FréttirSlasaðist alvarlega 9. maí 2011 13:03Kona slasaðist alvarlega er hún féll niður tröppur í íbúðarhúsi í Bláskógabyggð um helgina.Hún var flutt með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala þar sem hún gekkst undir aðgerð. Konan mun hafa höfuðkúpubrotnað og brákast á hálslið.