Í síðustu viku náðist sá merki áfangi við byggingu Búðarhálsvirkjunar að „slegið var í gegn“ í jarðgangnagerðinni þegar síðasta haftið í jarðgöngum var sprengt og göngin opnuðust í gegnum fjallið.
Jarðgöngin, aðrennslisgöng virkjunarinnar eru 4 km að lengd og með um 140 m2 þverskurðarflöt. Þau eru grafin frá báðum endum, en þó þannig að vegna hæðar þeirra þurfti að grafa þau í tveimur áföngum. Fyrst var efri hluti þeirra grafinn í gegnum hálsinn og síðan neðri hlutinn. Með sprengingunni síðdegis á þriðjudag náði efri hluti ganganna í gegnum Búðarhálsinn þegar gangamenn sem unnu í vesturhluta ganganna sprengdu sig inn í austurhluta þeirra um það bil undir miðjum hálsinum.
Á vef Landsvirkjunar kemur fram að þótt Búðarhálsinn líti frekar sakleysislega út á yfirborðinu eru jarðfræðilegar aðstæður hið neðra fjölbreytilegar og krefjandi. Stöðvarhúsið, sem staðsett er í vesturhlíð Búðarhálsins við vesturenda aðrennslisganganna, er grafið í allsprungið líparít sem telst einsdæmi hér á landi. Vesturhluti aðrennslisganganna er auk þess í nokkuð ummynduðu bergi þar sem skiptast á setlög og basaltlög. Austurhluti þeirra er hins vegar í þykku og hörðu basalti.
Verktakinn í verkinu er Ístak hf. og hafa gangamenn fyrirtækisins þurft að glíma við þessar ólíku aðstæður í sínu verki en með góðum mannskap og mikilli reynslu hefur þeim tekist það með ágætum. Vinna við neðri hluta ganganna er þegar hafin og gert er ráð fyrir því að gangagerðinni verði að fullu lokið sumarið 2013.
Að undanförnu hafa um 300 manns verið að störfum á verkstað. Um 250 hafa unnið að byggingarframkvæmdum á vegum Ístaks en aðrir á vegum erlendra verktaka við uppsetningu á raf- og vélbúnaði stöðvarinnar. Framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun hafa frá upphafi gengið ágætlega og gert er ráð fyrir því að stöðin verði gangsett fyrir árslok 2013.