Kl. 15:59 í dag barst útkall til Neyðarlínu vegna manns sem bjargað hafði verið meðvitundarlausum á land úr Silfru á Þingvöllum.
Lögregla og sjúkralið ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar voru kölluð til.
Maðurinn, sem er erlendur ferðamaður á sjötugsaldri, mun hafa verið að snorkla í gjánni og var í för með fleiri úr fjölskyldunni í skipulagðri ferð.
Maðurinn var fluttur með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík.