Sóknarfæri í nýsköpun er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall þar sem áhersla er lögð á verkefni sem tengjast orku, mat og líftækni, ferðaþjónustu og skapandi greinum. Hraðlinum verður stýrt af Svövu Björk Ólafsdóttur stofnanda .
Hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Suðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Sóknarfæri í nýsköpun til að komast lengra með sín verkefni.
Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Suðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.
Hraðallinn fer fram að mestu leyti á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Suðurlandi.
Kynningarfundur um hraðalinn verður haldinn í netheimum þann 30. nóvember næstkomandi og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta og heyra allt um verkefnið – skráning hér.
Verkefnið er samstarfsverkefni SASS og Háskólafélags Suðurlands, styrkt af Lóu nýsköpunarsjóði landsbyggðarinnar og Sóknaráætlun Suðurlands.