Í hádeginu í dag var Hjálparsveit skáta í Hveragerði kölluð út vegna göngukonu í Reykjadal í Ölfusi.
Konan var á göngu á svæðinu þegar hún hrasaði illa og fótbrotnaði.
Björgunarsveitarfólk ásamt sjúkraflutningamönnum fóru á vettvang á sexhjólum. Búið var um konuna þannig að hægt væri að flytja hana um 3 kílómetra niður að bílastæði þar sem sjúkrabíll beið.
Hún var komin um borð í sjúkrabíl einum og hálfum tíma eftir að útkall barst og var flutt til frekari aðhlynningar á sjúkrahús.