Íbúar í Árborg eru beðnir að fara sparlega með kalda vatnið, þar sem veðurfar hefur verið óvenju þurrt upp á síðkastið.
Á mælum Vatnsveitu Árborgar hefur komið í ljós að næturrennsli er nokkuð meira en í meðallagi, eða um 60 lítrar á sekúndu, en er að jafnaði um 50 lítrar á sekúndu. Sökum þessa eru íbúar beðnir að gæta að því hvort opið sé fyrir vatnsrennsli að óþörfu, svosem í beitarhólfum.
Þá er bent á að þrátt fyrir hlýtt og þurrt veður undanfarna daga er óþarfi að vökva grasflatir og trjágróður. Talsverður raki myndast að næturlagi og nægir það sem vökvun fyrir grasflatir og garða.
Þar sem þrýstingur á kalda vatninu er svo lítill sem raun ber vitni hefur verið dregið úr þrýstingi á hitaveitu, til þess að hitastýrð blöndunartæki ráði betur við að stilla hitann á vatninu. Eftir sem áður er nauðsynlegt að sýna varkárni í umgengni við heita vatnið.