Sveitarstjórn Flóahrepps hefur samþykkt að taka tilboði Fossraf á Selfossi í lýsingu við sparkvöll við Flóaskóla.
Tilboð Fossraf hljóðaði upp á tæpar 924 þúsund krónur.
Áður hafði sveitarfélagið óskað eftir tilboðum í lýsingu sparkvallarins og heimreiðarinnar að skólanum. Tvö tilboð bárust og var þeim báðum hafnað.
Í kjölfarið samþykkti að skoða það að setja minni lýsingu við sparkvöllinn heldur en upprunalegu tilboðin gerðu ráð fyrir.