Sextán gróðurhúsalömpum var stolið úr gróðurhúsi gróðrarstöðvar við Bröttuhlíð í Hveragerði nú um helgina.
Þjófarnir brutu rúðu til að komast inn í gróðurhúsið. Innbrotið hefur átt sér stað á tímabilinu frá kl. 19:00 á föstudag þar til um kl. 09:00 á laugardag.
Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um mannaferðir við gróðrastöðina á umræddu tímabili að hafa samband í síma 480 1010.
Í dagbók lögreglunnar á Selfossi kemur einnig fram að skorið var á plast á ellefu heyrúllum sem stóðu við hesthúsin í Þorlákshöfn í vikunni. Engar vísbendingar liggja fyrir um hver hafi verið það að verki og eru upplýsingar vel þegnar.