Starfsemi sláturhúss stöðvuð

Matvælastofnun hefur stöðvað markaðssetningu afurða frá Sláturhúsinu Seglbúðum ehf í Skaftárhreppi.

Eftirlitsmönnum Matvælastofnunar var nýlega meinaður aðgangur að húsnæðinu og mun stofnunin ekki heimila dreifinga afurða frá sláturhúsinu fyrr en nauðsynlegt eftirlit hefur farið fram.

Í tilkynningu frá Matvælastofnun segir að tilgangur eftirlitsins hafi meðal annars verið að fylgja eftir kröfum um úrbætur frá fyrri eftirlitsheimsóknum Matvælastofnunar. Ef ekki er unnt að framkvæma eftirlit getur stofnunin ekki sannreynt að framleiðslan uppfylli ákvæði laga um hollustuhætti í matvælaframleiðslu. Á meðan slíkt ástand varir er ekki hægt að heimila dreifingu matvæla og var markaðssetning stöðvuð á grundvelli laga um matvæli.

Fyrri greinDagbók lögreglu: Nokkur beinbrot færð til bókar
Næsta greinRannsókn á mansalsmálinu gengur vel