Í sumar undirritaði Rangárþing eystra samning við embætti landlæknis um að gerast Heilsueflandi samfélag.
Heilsueflandi samfélag er samfélag þar sem tekið er mið af heilsu og vellíðan allra íbúa í stefnumótun og aðgerðum á öllum sviðum. Unnið er heildstætt með áhrifaþætti heilbrigðis og er meginmarkmið starfsins að skapa umhverfi og aðstæður sem stuðla að heilbrigðum lifnaðarháttum, heilsu og vellíðan allra íbúa í Rangárþingi eystra.
Ýmislegt hefur þegar verið gert í sveitarfélaginu sem fellur undir markmið Heilsueflandi samfélags eins og t.d. Heilsuverkefnið 60+, viðburðir á haustin undir merkjum Heilsueflandi hausts, gerð heilsustígs og fleira.
Nú hefur verið stofnaður starfshópur sem mun vinna að innleiðingu á þessu verkefni en hann skipa Ólafur Örn Oddsson, íþrótta- og æskulýðsfulltrí og forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar og er hann formaður hópsins, Árný Lára Karvelsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi, Guðrún Björk Benediktsdóttir, umhverfis- og garðyrkjufulltrúi, Gyða Björgvinsdóttir, fulltrúi heilsueflandi leikskóla, Kristrún Ósk Baldursdóttir, fulltrúi Ungmennaráðs, Lilja Einarsdóttir, sveitarstjóri fulltrúi sveitarstjórnar, Páll Eggertsson, formaður heilsu-, íþrótta- og æskulýðsnefndar, Svavar Hauksson, fulltrúi félags eldri borgara og Tinna Erlingsdótir, fulltrúi heilsueflandi skóla.