Ferðamaður steig í hver á Hrunamannaafrétti á fjórða tímanum í dag og brenndist nokkuð á fæti.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi er óljóst hversu mikið maðurinn er meiddur en björgunarsveitarmenn úr hálendisgæslu Landsbjargar fóru á slysstaðinn auk sjúkrabifreiðar frá Selfossi.