Í nótt var byrjað að steypa í nýju brúna yfir Múlakvísl. Unnið er að steypuvinnunni allan sólarhringinn og er áætlað að verkinu ljúki á sunnudagskvöld.
Það eru Steypudrangur ehf í Vík og Steypustöðin sem sjá um verkið sem er geysilega umfangsmikið. Unnið er allan sólarhringinn á tólf tíma vöktum en um tuttugu starfsmenn koma að verkinu á fimm steypubílum og tveimur dælubílum.
Áætlað er að nýja brúin verði fullbúin í september næstkomandi. Brúin er byggð á þurru og uppfyllingu mokað að henni en hún verður um 160 metra löng og tíu metra breið. Stöplarnir eru sex, tveir landstólpar og fjórir úti í fljótinu.
Hún leysir af hólmi brúna sem tók af í jökulhlaupi í júlí árið 2011. Bráðabirgðabrú var byggð það sama sumar.