Stöðugildum hjá ríkinu hefur fækkað um 545 frá ársbyrjun 2009 til ársloka 2010. Mest hefur fækkað á heilbrigðisstofnunum, um 470 stöðugildi.
Þetta kom fram í svari Steingríms J. Sigfússonar, fjármálaráðherra, í vikunni við fyrirspurn um fækkun stöðugilda hjá ríkinu. Af þessum 545 stöðugildum fækkaði um 240 stöðugildi í Reykjavík, en um 305 stöðugildi utan Reykjavíkur.
Magnús Skúlason, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, segir þessar upplýsingar koma ekki á óvart. „Þessar upplýsingar passa hins vegar engan veginn við upplýsingar, sem stjórnendur Landspítala hafa kynnt margoft um, að þar hafi fækkað um 660 stöðugildi. Nauðsynlegt er, að stjórnvöld skýri þennan mismun. Það er algjörlega óviðunandi að svo misvísandi upplýsingar komi frá stjórnvöldum um grunnupplýsingar varðandi fjölda stöðugilda hjá ríkinu,“ segir Magnús í pistli á heimasíðu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.
Magnús segir að almenningur, starfsmenn heilbrigðisstofnana og ekki síst stjórnmálamenn, sem þurfa að taka stefnumarkandi ákvarðanir varðandi útgjöld ríkisins, verða að geta treyst því, að stjórnvöld veiti sem nákvæmastar og áreiðanlegastar upplýsingar um starfsemi og útgjöld ríkisins. Framangreint misræmi veki tortryggni og vantrú á áreiðanleika þessara upplýsinga.
„Brenglaðar upplýsingar um stöðu fjármálakerfisins fram að hruninu 2008 ættu að vera lærdómur fyrir alla. Áreiðanleiki og traust er forsenda málefnalegrar umræðu og sanngirni við ákvarðanatöku,“ segir Magnús ennfremur.