Stöðvuðu kannabisrækun í Hrunamannahreppi

Lögreglan á Selfossi stöðvaði í síðustu viku kannabisræktun sem komið hafði verið upp í húsi í Hrunamannahreppi.

Í húsinu voru tíu plöntur í góðum vexti sem lagt var hald á ásamt ýmsum búnaði tengdum ræktuninni.

Einn maður var kallaður til yfirheyrslu vegna málsins. Hann gekkst við ræktuninni og munu aðrir ekki tengjast henni.

Fyrri greinNágrannar vildu ekki miðaldasetur
Næsta greinMikið um óhöpp í vikunni