Ása Guðmundsdóttir á Hvolsvelli hefur stofnað minningarsjóð til minningar um dóttur sína, Guðrúnu Gunnarsdóttur sem fædd var 5. maí 1958 og lést 29. apríl 1983.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja efnilega tónlistarnemendur í Rangárvallasyslu með fjárframlögum.
Guðrún var mikill unnandi tónlistar og lærði á píanó í Tónlistarskólanum á Hvolsvelli. Hún átti ekki langt að sækja tónlistaráhuga sinn, en faðir hennar var Gunnar Guðjónsson, hljómsveitastjóri á Hvolsvelli, sem einnig er látinn.
Tekjur sjóðsins eru vaxtatekjur af stofnframlagi svo og útgáfa minningarkorta. Þau er hægt að nálgast hjá Sigurlínu Óskarsdóttur í Norðurgarði 20 á Hvolsvelli og Gyðu Guðmundsdóttur á Freyvangi 3 á Hellu.
Stjórn sjóðsins skipa: Ísólfur Gylfi Pálmason formaður, Ágúst Sigurðsson gjaldkeri og Sigurlín Óskarsdóttir ritari. Varamenn eru Júlíus P. Guðjónsson, Séra Gunnar Björnsson og endurskoðandi Águst Ingi Ólafsson.