Berghrun átti sér stað nú nýlega úr Steinafjalli og hafa vegfarendur hugsanlega rekið auga í nýtilkomið stórgrýti við þjóðveginn.
Greint er frá þessu á Facebooksíðu Kötlu jarðvangs.
Hrunið átti sér stað líklega á milli síðastliðins föstudags og mánudags. Stórgrýtið er úr basalti og liggur rétt við þjóðveginn u.þ.b. mitt á milli Steinahellis og Steina.
Ekki er sjáanlegt brotsár í hömrunum fyrir ofan né að fleiri stórir steinar hafi fylgt þessum eftir. Fylgja má fari í jarðveginum, þar sem bergið rúllaði yfir, töluverða leið upp að hömrunum fyrir ofan en blessunarlega stöðvaðist hann áður en hann fór yfir þjóðveginn.
Þónokkur berghrun hafa orðið á þessum slóðum á síðastliðnum árum en Vegagerðin veit af hruninu og verður steinninn fjarlægður á næstu dögum.