Ellefu ára stúlka sem slasaðist alvarlega þegar hún var að renna sér á snjóþotu í Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum í gær hefur verið flutt af slysadeild Landspítalans í Fossvogi yfir á legudeild.
Stúlkan hlaut meðal annars höfuðáverka og handleggsbrotnaði þegar hún skall á húsvegg á töluverðri ferð. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út og flutti stúlkuna á Landspítalann.
mbl.is greinir frá þessu
TENGDAR FRÉTTIR:
Slasaðist alvarlega á snjóþotu