Bíleigandi kom að bíl sínum í stæði við Austurveg á Selfossi síðastliðinn föstudag, þar sem stungið hafði verið á öll fjögur dekk bílsins.
Ekki liggur fyrir hver hefur unnið skemmdarverkið og er þess óskað að þeir sem hafi upplýsingar um málið setji sig í samband við lögregluna í síma 444 2000 eða með tölvupósti á sudurland@logreglan.is.