Bílvelta varð á Biskupstungnabraut í Grímsnesi um hádegi á sunnudag.
Ökumaður slasaðist minniháttar en var fluttur til rannsóknar á Slysadeild Landspítala.
Hann er grunaður um ölvun auk þess sem hann hafði tekið bifreiðina í óleyfi og mun hann verða kærður fyrir nytjastuld.