Styrktu Stjörnuna eftir leit í Eldgjá

Kynnisferðir og Reykjavík Excursions afhentu björgunarsveitinni Stjörnunni í Skaftártungu nýverið styrk að upphæð 300 þúsund krónur og rennur upphæðin í til húsbyggingar sveitarinnar.

Með fjárhagsstuðningnum vildu gefendur þakka sveitinni fyrir umfangsmikla þátttöku í leit að konu sem talið var að væri týnd í Eldgjá. Síðar kom á daginn að leitin var óþörf því konan var ekki týnd.

„Mannleg mistök urðu til þess að umfangsmikil leit var gerð að erlendri konu sem var farþegi í rútu Kynnisferða við Eldgjá í Skaftártungu 26. ágúst. Leitinni var hætt þegar í ljós kom að konan var ekki týnd. Í ljós kom að konan hafði skipt um föt og bar bílstjórinn ekki á kennsl á hana aftur þegar talið var á ný í rútuna. Alls tóku um fimmtíu manns þátt í leitinni og báru björgunarsveitarmenn Stjörnunnar hita og þunga af leitinni,“ segir í tilkynningu.

Auk Stjörnunnar tóku fjölmargar björgunarsveitir þátt í leitinni.

Fyrri greinHamar semur við Örn og Hollis
Næsta greinSafnarar safnast saman í Brautarholti