Í dag var fyrsti menningarviðburðurinn í menningarmánuðinum október, sem skipulagður er af íþrótta- og menningarnefnd Árborgar, haldinn á Stokkseyri.
Dagurinn í dag er afmælisdagur tónskáldsins Páls Ísólfssonar, sem fæddist á Stokkseyri fyrir 120 árum, og var af því tilefni afhjúpuð stytta af Páli á nýjum stað á Stokkseyri. Styttan hefur staðið við Ísólfsskála síðastliðin 40 ár en núna er hún kominn á fallegan teig á móts við Þuríðarbúð í hjarta þorpsins.
Það var Anna Sigríður Pálsdóttir, dóttir skáldsins og Kjartan Björnsson, formaður ÍMÁ sem afhjúpuðu styttuna í sameiningu.
Að þeirri athöfn lokinn var boðið til kaffisopa í Svartakletti, galleríi Elfars Guðna áður en Kristjana Stefáns ásamt kvartett stigu á svið í Stokkseyrarkirkju og spiluðu lög eftir Pál. Góð mæting var í kirkjuna en rúmlega 70 manns sátu á tónleikunum.