Hrunamannahreppur og Suðurnesjadeild ferðaklúbbsins 4×4 skrifuðu í síðustu viku undir leigusamning en félagið mun taka við fjallaskálanum í Leppistungum.
Skálinn í Leppistungum var reistur 1987 en hann stendur við Kerlingará ofarlega á Hrunamannaafrétti.
Suðurnesjamennirnir hafa því fengið afnot af skálanum og stefna þeir á að byggja hann upp á næstu árum og gera aðstöðuna alla betri og skemmtilegri.
Í skálanum eru kojur fyrir 24, rennandi vatn, eldunaraðstaða, hesthús og hestagerði.