Suðurlandsvegi hefur verið lokað milli Víkur í Mýrdal og Kirkjubæjarklausturs vegna áreksturs tveggja bifreiða rétt austan við Hjörleifshöfða.
Viðbragðsaðilar eru við vinnu á vettvangi og segir lögreglan að ljóst sé að talsverð slys séu á fólki. Ökumenn og farþegar eru erlendir ferðamenn.
Óskað hefur verið eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja slasaða af vettvangi.
Búast má við að lokun Suðurlandsvegar vari í 2-3 klukkustundir vegna björgunarstarfa og rannsóknarvinnu á vettvangi.
Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar um málið að sinni.
UPPFÆRT KL. 18:58: Þyrla Landhelgisgæslunnar er lent á vettvangi og er nú unnið að því að koma slösuðum um borð. Ljóst er það mun taka nokkurn tíma sökum áverka hinna slösuðu.
UPPFÆRT KL. 19:36: Allir hinir slösuðu hafa verið fluttir um borð í þyrlu Landhelgisgæslunnar sem er að taka á loft á vettvangi. Við tekur áframhaldandi vinna og rannsókn á vettvangi.
UPPFÆRT KL. 21:47: Vinnu lögreglu og viðbragðsaðila á vettvangi slyssins er lokið og vegurinn opinn fyrir umferð að nýju.