Búið er að loka Suðurlandsvegi milli Markarfljóts og Hafnar í Hornafirði. Veðurviðvörun á Suðausturlandi hefur veirð uppfærð í rauða viðvörun frá kl 18 í kvöld til klukkan 2 í nótt.
Hálkublettir eru á Hellisheiði, Sandskeiði, Þrengslum og Lyngdalsheiði.
Gul viðvörun tók gildi á Suðurlandi klukkan 14. Hellisheiði og Lyngdalsheiði, ásamt Mosfellsheiði eru á óvissustigi til klukkan 20 og 22 í kvöld.
Aðgerðastjórn lögreglu og viðbragðsaðila verður á Suðurlandi verður virkjuð síðar í dag.