Suðurlandsvegur er lokaður í Ölfusi, um óákveðinn tíma, eftir árekstur vestan við Kögunarhól í hádeginu.
Neyðarlínan fékk tilkynningu um slysið kl. 12:21.
Á meðan viðbragðsaðilar athafna sig á vettvangi er umferð beint um Hvammsveg.
UPPFÆRT KL. 13:44 Búið er að opna veginn á nýjan leik.