Suðurstrandarvegur hefur sigið meira á þeim stað þar sem vart varð við sig fyrr í vikunni við Festarfjall.
Af þeim ástæðum hefur verið tekin ákvörðun um að loka veginum frá og með kl. 18:00 í kvöld fimmtudag og að minnsta kosti til morguns. Þá verður ástandið metið að nýju.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að þrátt fyrir að þungatakmarkanir hafi verið settar á og vegur þrengdur hafi Vegagerðin áhyggjur af áframhaldandi sigi og breytingum á þessum stað. Einnig hefur rignt á svæðinu og spáð áframhaldandi rigningu sem gæti haft áhrif á ástandið.
Þrátt fyrir lokun á veginum er Vegagerðin viðbúin því að opna í skyndingu fyrir umferð austur á bóginn, í einstefnu, reynist þörf á því.
Lokað verður austan Grindavíkur og vestan vegamóta Krýsuvíkurvegar þannig að umferð sem kemur að austan kemst um Krýsuvík.