Sumar og vetur frusu saman en víða á Suðurlandi var frost í nótt. Íslensk þjóðtrú segir það góðs viti og að heyfengur verði góður í sumar.
Þetta er í fyrsta sinn í níu ár sem sumar og vetur frjósa saman á Suðurlandi. Frostlaust var við ströndina en á Hellu var -1,6°C klukkan 2 í nótt og -3,3°C á Kálfhóli á Skeiðum. Á Þingvöllum fór frostið í -4,1°C klukkan 3 í nótt.
Rjóminn jafn þykkur og ísskánin
Í bókinni Sögu daganna segir Árni Björnsson að hvarvetna hafi verið fylgst með því hvort frost væri aðfaranótt sumardagsins fyrsta, þ.e. hvort saman frysti sumar og vetur.
Yfirleitt var það talið góðs viti og jafnvel álitið að rjóminn ofan á mjólkurtrogunum yrði jafn þykkur og ísskánin á vatninu þessa nótt. Í því skyni settu menn skál eða skel með vatni út um kvöldið og vitjuðu svo eldsnemma morguns.
Ekki frosið saman í átta ár
Frá því mælingar sunnlenska.is hófust árið 2010 hafa sumar og vetur sjaldnast frosið saman. Athygli vekur að síðast fraus saman árið 2016 og því hafa sumar og vetur ekki frosið saman í átta ár, þar til nú. Þrátt fyrir það hafa sumardagarnir undanfarin ár verið hlýir og sólríkir, ef frá eru talin árin 2018 og 2024, sem voru skelfilega leiðinleg kulda og rigningarsumur.
Ritstjórn sunnlenska.is getur því staðfest, þar sem sumar og vetur frusu saman, að miklar líkur séu á hlýju og góðu sumri 2025.
Sunnlenska.is óskar lesendum sínum gleðilegs sumars.