Sumarbústaðaeigendum innan Þjóðgarðsins á Þingvöllum hefur verið gert að fjarlægja girðingar umhverfis bústaði sína.
Með þessu batnar ásýnd þjóðgarðsins og auðveldara verður að ferðast innan svæðisins. Í staðinn mun þjóðgarðurinn girða fyrir ofan sumarbústaðina við Kárastaði á Þingvöllum í júní og koma þannig í veg fyrir ágang fjár á svæðinu.
Þessum breytingum er komið á í samningum sem nýbúið er að endurnýja við sumarbústaðaeigendur innan þjóðgarðsins og gilda til næstu tíu ára segir Ólafur Örn Haraldsson þjóðgarðsvörður.
Einnig stendur til að gera hollustuþáttakönnun á vatnsöflun á svæðinu og frárennsli rotþróa í Þingvallavatn. Ólafur Örn segir þetta tilkomið vegna þess að komin er gríðarlega ströng hollustureglugerð sem krefur um þriggja þrepa rotþrær við vatnið fyrir árið 2020. Þær eru öflugri en venjulegar rotþrær því þær taka líka köfnunarefni sem ella gætu borist í vatnið, haft áhrif á lífríkið og spillt þar með tærleika Þingvallavatns.