Framundan er setning grunn og framhaldsskóla. Framhaldsskólanemar eru hvattir til að aka gætilega en á hverju hausti tapast stór hluti sumarhýru einhverra þeirra í hraðasektir.
Þessi aldurshópur er jafnframt sá hópur sem hættast er við að lenda í óhöppum í umferðinni.
Þegar skólar hefjast fjölgar börnum og ungmennum í umferðinni og eru foreldrar hvattir til að leiðbeina börnum sínum um hentugar leiðir að og frá skóla og fylgja þeim yngstu á meðan þau læra á leiðina og þær hættur sem þar leynast.
Börn undir 15 ára aldri eiga að nota hjálm við hjólreiðar og foreldrar eru hvattir til að gera það einnig.