Sundlaugin Laugaskarði í Hveragerði verður lokuð frá 1. október til 1. apríl næstkomandi á meðan unnið verður að miklum endurbótum á sundlaugarhúsinu.
Húsið er byggt árið 1963 eftir teikningu Gísla Halldórssonar arkitekts en það þykir mjög glæsilegt og hefur vakið athygli fyrir fallega hönnun sem fellur vel inn í landslagið.
Í haust verður farið í framkvæmdir á 1. hæð sundlaugarhússins en endurbæturnar fela í sér stækkun og endurnýjun á búningsklefum og bætast við tveir fjölnota búningsklefar og sjúkraherbergi í vestari hluta hússins. Uppsetning á loftræstikerfi verður kláruð en hún mun þjóna öllu húsinu. Hönnuðir eru frá Verkís og Arkibúllunni ehf. Þess má geta að Margét Leifsdóttir arkitekt hjá Arkibúllan ehf. er barnabarn Gísla Halldórssonar sem teiknaði húsið og hefur verið horft til upprunans í hönnun og litasamsetningum.
Metaðsókn að lauginni í sumar
Að sögn Jóhönnu M. Hjartardóttur, menningar- og frístundafulltrúa Hveragerðisbæjar, verður mikið rask á sundlaugarsvæðinu á meðan framkvæmdum stendur og verður sundlaugin lokuð frá 1. október á framkvæmdatíma sem er áætlaður til 1. apríl 2021.
„Það er horft til þess að hafa líkamsræktina, Laugasport, opna en ljóst er að starfsemin verður skert og mun sturtuaðstaða verða opin fyrir gesti í íþróttahúsum bæjarins þegar verður lokað fyrir vatnið,“ segir Jóhanna og bætir við að Hvergerðingar og gestir þeirra hafi verið duglegir að heimsækja Laugaskarð í sumar.
„Það var metaðsókn í júlí, eða um 8.500 gestir. Það var ánægjulegt þegar heilbrigðisyfirvöld leyfðu opnun sundlauga í maí því það er endurnærandi fyrir líkama og sál að synda og fara í heit böð. Vel hefur gengið að sinna sóttvörnum og virða flestir sundlaugargestir fjarlægðartakmarkanir,“ segir Jóhanna.