Sunnlendingar á toppnum

Síðastliðinn miðvikudag urðu Sunnlendingar, HSK og aðildarfélög þess við áskorun Austfirðinga um að ná Perlubikarnum af Akureyringum.

Sunnlendingar komu þá saman og perluðu af krafti en til að ná bikarnum af Akureyringum þurftu þeir að perla fleiri en 2.302 armbönd á fjórum klukkutímum.

Um 250 manns mættu í Sunnulækjaskóla á Selfossi og perluðu í fjóra tíma. Sunnlendingar kepptust svo sannarlega við, og viti menn þeir náðu Perlubikarnum á lokasekúndunum með því að perla 2.308 armbönd.

Staðan í Perlubikarnum er því nú sú að Sunnlendingar eru efstir, Akureyringar í öðru sæti og Austfirðingar í því þriðja. Enn hafa íþróttafélög og bæjar-/sveitafélög tækifæri á að ná Perlubikarnum af Sunnlendingum en mótinu líkur fyrir 14. júlí næstkomandi.

Þónokkrir hafa þegar sett sig í samband við Kraft og ætla t.d. HK að reyna við bikarinn þann 27. júní og Breiðablik þann 8. júlí.

Armböndin sem eru perluð eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum og sýna einnig samstöðu með íslenska fótboltaliðinu á HM.

Armböndin eru seld á vefsíðu Krafts www.kraftur.org, Útilíf, Errea, Jóa Útherja, Ölveri og í Kraftstjaldinu í Hljómskálagarðinum þegar leikir Íslands eru.


Armböndin sem eru perluð eru í fánalitunum og eru þau seld til stuðnings ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þeirra. sunnlenska.is/Guðmundur Karl

Fyrri grein„Ánægður með stigið“
Næsta greinSuðurstrandarvegi lokað að hluta á sunnudagsmorgun