Mikill kraftur og samhugur er meðal Sunnlendinga í baráttunni gegn blóðugum niðurskurði í heilbrigðisþjónustunni á landsbyggðinni.
Undanfarna daga hefur verið safnað undirskriftum meðal íbúa á Suðurlandi undir mótmælaskjal þar sem áformuðum niðurskurði er mótmælt og skorað á ríkisstjórn og Alþingi að tryggja að sjúkrahúsunum á Selfossi, Vestmannaeyjum og Höfn verði ekki lokað eins og ætlunin er með fyrirliggjandi fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2011.
Ákveðið hefur verið að afhenda forsætis-, heilbrigðis- og fjármálaráðherrum undirskriftalista með mótmælum íbúa á Suðurlandi við Alþingishúsið á fimmtudaginn 11. nóvember kl 16.00. Sunnlendingar munu safnast saman við sjúkrahúsið á Selfossi klukkan 14:30 á fimmtudag og aka þaðan fylktu liði á fólksbílum og langferðabílum til Reykjavíkur.