Sunnlensk stórsýning í Reykjavík

Dagana 18. – 21. mars standa Markaðsstofa Suðurlands, Atvinnuþróunarfélag Suðurlands og Menningarsamningur Suðurlands fyrir landshlutasýningu í Ráðhúsinu Reykjavík með yfirskriftinni ,,Suðurland já takk“.

Markmið sýningarinnar er fyrst og fremst að kynna framleiðslu og þjónustu á Suðurlandi. Sýningin á að höfða til fagaðila og neytenda sem kaupa og nýta sér framleiðslu- og þjónustu af svæðinu.

Fyrirtæki og stofnanir hvött til að taka þátt í sýningunni og eiga þannig þátt í að gera landshlutann sem sýnilegastan. Þátttökukostnaður er 18.000 pr. fyrirtæki og verður sýningarsvæðið skipulagt með þátttökuaðilum.

Þau fyrirtæki sem hafa áhuga á þátttöku vinsamlega hafið samband við Davíð Samúelsson, davidsam@south.is 483-5555 og Steingerði Hreinsdóttur, steingerdur@sudur.is 480-4212.

Fyrri greinLeitað að Matthíasi í Reykjadal
Næsta greinVilja ekki virkjun í Grændal