Málefni heilsugæslu Rangárþings hafa verið til mikillar umræðu undanfarin misseri vegna vanda við að manna stöður lækna í héraðinu. Sú staða hefur reglulega komið upp að enginn læknir sé á vakt á stóru svæði á Suðurlandi.
Þetta hefur skapað aukið álag á annað heilbrigðisstarfsfólk og óöryggi fyrir íbúa og þann gríðarlega fjölda ferðamanna sem fer um svæðið.
Fulltrúar Rangárþings ytra, Rangárþings eystra og Ásahrepps hafa fundað með forstjóra og framkvæmdastjóra hjúkrunar og heilsugæslu HSU til að fara yfir málin og leita skýringa og lausna á stöðunni. Eins og sunnlenska.is hefur greint frá kom fram á þeim fundi að grunnþjónusta læknis í sýslunni sé tryggð út febrúar næstkomandi. Sá tími verður nýttur til þess að auglýsa og ráða lækna í fastar stöður. Einnig kom fram að ráðuneytið sé að skoða einhvers konar ívilnanir til að laða að heilbrigðisstarfsfólk út á land.
Í fréttatilkynningu sem sveitarfélögin í Rangárvallasýslu sendu frá sér í dag er ítrekað að þeu séu hér eftir sem hingað til tilbúin að liðka til fyrir ráðningarferlinu eins og þeim er heimilt.
Sveitarfélögin lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðunni og ítreka að núverandi staða og óvissa sé óboðleg 4.519 íbúum sýslunnar og öðrum gestum hennar.
„Ljóst er að þessi staða hefur valdið verulega auknu álagi á annað starfsfólk heilsugæslunnar og á sjúkraflutningafólk. Vilja fulltrúar sveitarfélaganna koma á framfæri sérstökum þökkum til þeirra sem staðið hafa vaktina og sinnt framúrskarandi starfi af einstakri elju og sóma. Von kjörinna fulltrúa og íbúa Rangárvallasýslu er að málin leysist sem fyrst og að viðunandi læknisþjónusta verði tryggð til frambúðar,“ segir í fréttatilkynningunni.