Sveitarstjórn Bláskógabyggðar segir mikilvægt að þeim stofnunum sem sjá um viðhald og eftirlit sauðfjárvarnarlína milli varnarhólfa sé tryggt nægt fjármagn til að varnarlínur þjóni hlutverki sínu eins og kostur er.
Sveitarstjórnin bókaði um þetta á síðasta fundi sínum en Ásta Stefánsdóttir, sveitarstjóri, sagði í samtali við sunnlenska.is að eins og er þá sé girðingum sem eru varnarlínur víða illa viðhaldið.
„Í ljósi þess að riðuveiki í sauðfé hefur nýlega verið staðfest á fjórum búum í Skagafirði vill sveitarstjórn Bláskógabyggðar ítreka mikilvægi varna gegn útbreiðslu búfjársjúkdóma.
Mikilvægt er að þeim stofnunum sem sjá um viðhald og eftirlit varnarlína milli varnarhólfa sé tryggt nægt fjármagn til að varnarlínur þjóni hlutverki sínu eins og kostur er,“ segir í bókun sveitarstjórna.
Þá telur sveitarstjórn ekki skynsamlegt að leggja niður eða breyta núverandi varnarlínum með það að markmiði að fækka varnarhólfum og sameina.
„Slík sameining gæti orðið til þess, ef upp kæmi riða, að skera þyrfti niður mikinn fjölda sauðfjár á stórum svæðum með tilheyrandi frjárhags- og tilfinningatjóni fyrir bændur. Samfélög sveitanna hlytu líka skaða af þar sem stór hluti af menningu og hefðum þeirra tengjast sauðkindinni. Sé það raunverulegur vilji stjórnvalda að standa vörð um og styrkja íslenska matvælaframleiðslu þá þarf fjármagn að fylgja efndum. Öflugar varnir gegn útbreiðslu búfjársjúkdóma eru lykilatriði í varðveislu islenskra búfjárstofna sem íslensk matvælaframleiðsla er að mestu byggð á,“ segir ennfremur í bókuninni.