Sviptur eftir akstur á 176 km/klst hraða

Lögreglan við Gígjukvísl. Mynd úr safni. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurlandi

Lögreglan á Suðurlandi kærði tuttugu ökumenn í gær fyrir of hraðan akstur. Sá sem hraðast ók var mældur á 176 km/klst hraða.

Var hann sviptur ökuréttindum á staðnum og þurfti að láta af hendi nokkurra daga gamalt ökuskírteini sitt.

Einn gisti fangageymslu
Annars var fremur rólegt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi síðasta sólarhringinn. Mikill fjöldi ferðamanna, innlendra sem erlendra, eru nú í umdæminu og tjaldsvæði víða þétt skipuð. Skemmtanahald fór vel fram og voru fá útköll og verkefni sökum vímuástands eða óspekta síðastliðna nótt. Einn gisti fangageymslu lögreglu á Selfossi.

Lögregla mun halda uppi öflugu eftirliti næstu daga og mega ökumenn búast við að lögregla setji upp eftirlitsstöðvar á völdum staðsetningum þar sem kannað verður með ástand ökutækja sem og ástand og réttindi ökumanna. Lögregla verður einnig með óeinkennisklædda lögreglumenn á ferð um umdæmið.

Lögreglan áréttar að akstur, áfengi og önnur vímuefni eiga ekki samleið og beinir þeim tilmælum til ökumanna að setjast ekki undir stýri nema allsgáðir og úthvíldir.

Fyrri greinAllir til fyrirmyndar við setningu Unglingalandsmóts
Næsta grein„Allir í sólskinsskapi“